| Efnahags- og skattamál | | Vinnumarkaðsaðgerðir |
| Stoðkerfi atvinnulífsins | | Nýsköpun og hugverkaiðnaður |
| Kvikmyndagerð og tónlist | | Ferðaþjónusta |
| Landbúnaður | | Orkumál/Orkuskipti |
Efnahagslífið er um þessar mundir þjakað af skuldavanda fólks og fyrirtækja og allt of háu atvinnuleysi. í lok ágúst 2011 voru rúm tólf þúsund manns atvinnulaus. Stjórnvöld þurfa að sjá til þess að úrlausn á skuldavanda heimila og fyrirtækja gangi greiðlega fyrir sig og hvetja til fjárfestingar í atvinnuskapandi verkefnum.
Með aukinni verðmætasköpun og eftirspurn munu tekjur ríkissjóðs vaxa sem er grundvöllur aukinnar velferðar þeirra sem minnst lífskjör hafa. Ef takast á að vinna bug á atvinnuleysinu og auka fjárfestingu og uppbyggingu í íslensku atvinnulífi verðum við að blása þegar í stað til samtaka stórsóknar í atvinnumálum. Í þeirri sókn verður að taka tillit til sem flestra þátta atvinnulífsins og hugsa sérstaklega til þátta sem geta gefið fyrirtækjum hvata til að auka umsvif og ráða fólk til vinnu. Ríkisvaldið verður að skapa jákvæða hvata fyrir uppbyggingu og fjárfestingu til að íslenskt atvinnulíf geti dafnað á ný.

